...OuiElsa Bjarnadóttir

Bonjour!
Alltaf eitthvað verið að kvarta yfir bloggleysi, ég er bara svo löt við þetta! Búið að vera svo mikið að gera í skólanum hérna og svo er ég líka í fjarnámi í fg, og það er ekkert minna að gera þar..

En jæja, komin febrúar.. maður er næstum því búin að vera hérna úti í hálft ár, ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða.. áður en ég veit af því, á ég eftir að vera á leiðinni heim..

En já, hvar á ég að byrja.. jólin hjá mér voru alveg rosa fín, svoldið mikið öðruvísi en vanarlega. En þetta var samt skemmtileg reynsla. Byrjuðum á því að fara til Limoges þar sem foreldrar Fabienne búa, vorum þar yfir jólin, sem var já, öðrivísi en vanarlega. Enginn alvöru jólastemming í fólkinu, en svonna smá samt. Það er alveg sett upp nokkur jólaljós og smá skreitingar í húsin en ekkert á við á Íslandi! Á aðfangadag var borðað víetnamískan mat, sem var svoldið spes, enginn hamborgahryggur, og vá hvað mér langaði mikið í þannig!! En það voru svonna kínarúllur og þvílíkt mikið salat og kjöt og allskonar.. þar sem að pabbi Fabienne er frá víetnam, þá bjó hann til þetta og var bara nokkuð gott! Fór síðan á afmælisdaginn minn til Parísar með systur minni, fórum eldsnemma um morgunninn og vorum komar um tíu leitið, vorum að labba um París, fórum á alla þessa frægustu staðinna og svonna. Fengum okkur að borða og fórum svo Í Effel Turninn, á toppinn, eitthvað sem maður varð auðvitað að gera :) Ekkert smá flott að sjá svonna yfir alla borginna sem er ekkert smá stór. Fórum síðan að skoða í búðir og eitthvað enduðum svo á bar, fengum okkur nokkra drykki og að borða. Enduðum svo á því að taka lest um kvöldið. Komum síðan heim þá beið mín afmæiskaka og nokkrar krúttlegar gjafnir og eitthvað allskonar. Þetta var alveg æðislegur dagur :) Fórum síðan að heimsækja ættingja þeirra í nokkrum bæum á leiðinni til Bordeaux. Gaman að hafa farið á alla þessa staði :) Enduðum svo í Bordeaux, þar sem að þau eiga annað hús og vorum þar seinustu vikuna af fríinu. Á gamlarskvöld buðu þau alveg örugglega svonna 50 manns í alveg svakalegt party, hehe var samt alveg mikið skemmtilegra en ég átti von á, voru búin að gera dagskrá fyrir kvöldið og eitthvað allskonar. Var bara nokkuð skemmtilegt.

Síðan byrjaði skólinn að sjálfsögðu í janúar aftur, og alveg þvílíkt mikið að gera, eins og alltaf!! En ég fór síðan fyrstu helgina í janúar með stelpunum í bekknum mínum útað borða og fórum á nokkra skemmtistaði, sem er auðvitað alltaf jafn gaman :) Síðan var eitthver AFS hittingur, helgina eftir.. sem var alveg ágætt. Og síðan er alltaf eitthvað í gangi.. ég set inn myndir sem fyrst, ég veit ekki afhverju ég er svonna rosalega löt við þetta, skil ekkert í mér!!

Og núna er ég komin aftur í 2 vikna frí frá skólanum :) Og er að fara til vinkonu minnar í viku og fer síðan með systur minni til Parísar, verðum þar hjá frænku hennar í eitthverja 3 daga, þau búa nú samt í bæ svoldið útúr París. En við ættlum að skella okkur í disney land og svonna:D Hehe rosa gaman!

En ég ættlaði nú bara aðeins að láta heyra í mér, eftir fríiið kem ég með eitt alvöru blogg, set inn fullt af myndum frá jólunum og öllu því sem er búið að vera í gangi. Og svonna í lokin gleðilegt nýtt ár!! og takk fyrir öll þau gömlu :)



Ein hérna, af mér í París :)

Þanngað til næst!

Bisous
Elsa

Gleðileg jól öllsömul :)Elsa Bjarnadóttir

Heelloo :)

Þið verðið af afsaka þetta bloggleysi ég er bara ekkert alltof mikill bloggari í mér og hef verið eitthvað frekar löt við þetta!

Seinasti mánuður er búin að vera mjög fínn og allt búið að ganga svo vel, eins og alltaf :) Frekar mikið búið að vera í gangi. Seinustu tvær vikur er búið að vera verkfall í skólnum mínum, og gjörsamlega allt búið að vera brjálað! Ég hef aldrei séð neitt svonna áður. Fyrsta daginn voru svonna 400 krakkar af 1400 sem eru í skólanum búnir að stela lykklunum af skólnaum, númerinu af þjófavarnakerfinu og alles.. þegar krakkarnir mættu síðan í skólan var búið að fylla alla ganga af stólum og borðum og það var virkilega ekki séns að komast upp neina stiga eða inní neina skólastofu, komu fullt af löggum, en þær voru ósköp rólegar og skilningsríkar eins og krakkarnir sögðu, því þetta er víst ósköp eðililegt hérna í Frakklandi. Voru fréttamenn útum allt og eitthvað, hehehe mér fannst þetta frekar fyndið, þar sem ég hef aldrei séð neitt svonna áður! Síðan sváfu fullt af krökkum í skólnum og tóku mat úr matsöluni og komu sér bara vel fyrir þarna :) En einhverjar stelpurnar tóku fullt af myndum, ég fæ þær hjá þeim seinna og skelli þeim hérna inn, þið bara verðið að sjá þetta :)

Seinasta laugardag voru svonna "litlu jólin" hjá AFS, áttu allir að koma með eftirrétt frá sínu landi, ég bjó til svonna möndlugraut, sem ég borða nú samt aldrei á jólunum sjálf, svo ég kunni ekkert að búa hann til en mamma var búin að senda mér uppskriftir svo þetta gekk síðan bara nokkuð vel.. bjó síðan líka til uppáhalds súkkulaði kökuna mína, og hún hefur nú bara aldrei heppnast jafn vel :) og það fannst öllum þetta svo gott svo að ég sendi uppskriftinar til nokkra, hehe greinilegt að íslenskir eftirréttir eru bara frekar góðir. En síðan þurftum við að kynna landið okkar og okkur sjálf fyrir framan fullt fullt af fólki, og það var ekkert alltof skemmtilegt, en ég held að ég hafi nú samt bara gert mjög flotta kynningu fyrir ísland, frakkarnir eiga alveg eftir að fara þangað í röðum eftir þetta, ekki spurnig ;) En síðan þurftum við að gera eitthvað svonna hæfilega sýningu og ég hafi ekki hugmynd um það og einhverjar stelpur ekki heldur, svo ég stakk uppá því að við myndum taka svonna smá "mean girls" show haha.. sungum einhver jólalög á spænsku og ensku, var ekki alveg að fara reyna kenna 4 stelpum jólalag á íslensku, hefði tekið nokkrar vikur, ef ekki meira! En það var síða bara flott, vorum án nokkurs efa með lang bestu hæfileikana. Síðan var bara borðað, spjallað og farið í karokí í lokin, sem ég vildi óska að ég hefði aldrei tekið þátt í, þar sem ég kann engan vegin að syngja og mun mjög líklega aldrei kunna! Hehe en það var nú samt gaman.



Anastasia og ég



Flotta showið okkar



Frekar óskýr mynd, en eins og þið sjáið, þá var þetta ekkert smá flott



Svoldið skrítin mynd.. Leticia, Anastasia, ég og Ximena



Krúttlega jólatréið okkar! Það stendur gleðileg jól á öllum þessum miðum á fullt af tungumálum, mitt er þarna neðst!

Síðan voru fullt af krökkum sem sýndu dans frá sýnu landi og voru í búningunum og allar græjur, svoldið fyndið en gaman að sjá það :)

Helgina þar á undan, semsagt þar seinustu helgi fór ég á bretti með fjölskylduni hérna og það var GEÐVEIKT, skíðasvæðið sem við fórum á var svo ótrúlega stórt að ég átti ekki orð, og þau sögðu að þetta væri eitt af minnstu skíðasvæðunum hérna í Frakklandi. Skíðasvæðin heima eru svo lítil hehe gerði mér aldrei grein fyrir því fyrr en núna! En það var samt þvílíkt brjálað veður þegar við vorum þarna, en þrátt fyrir það var svo gaman :)



Á leiðinni upp stólinn



Og þetta er víst ég :)






Þegar við fórum gjörsamlega í óbygðir, ég átti ekki orð yfir því að gamla fólkið væri að draga mig í þetta, haha var klaki alla leiðina niður og klikkað veður, sást ekki NEITT! Hehe :D



Þarna vorum við nú samt komin mikið neðar og þetta var orðið mikið betra hehe



Hehe já, "rosa sætar"



Enduðum svo á því að við fundum einhverjar rassaþotur þarna, og það var auðvitað ekkert annað hægt en bara, go wild!



Flottur rass, ekki spurning ;)



Tók þessa úr fjallinu, svo krúttlegt :)



Síðan ég fór eitthvertíman á skauta..



Já, gaman að þessu.

Þessar myndir hérna fyrir neðan voru teknar einhvertíman þegar ég kom hingað.. ættlaði að vera löngu búin að setja þær inn, þetta er yfir allan bæinn minn



Hehe svakalegar skvísur alveg! Aurore, ég og Fabienne



Clermont-Ferrand, sést samt ekki allt! En þetta er bærinn sem ég er í :)

Anyway.. þá ég er að fara ferðast um Frakkland núna í jólafríinu. Förum til Limoges á eftir, þar sem að mamma og pabbi Fabienne eiga heima og verðum þar fram að næstu helgi, en í millitíðinni förum við til Orléans og síðan á afmælisdaginn minn fer ég með "systir minni" til Parísar yfir daginn :) Og ég get ekki beðið! Förum síðan til Bordeaux þar sem þau eiga hús og verðum þar yfir áramótin og restina af fríinu :) Og ég á eftir að pakka og er að fara eftir klukkutíma.

Svo ég vill nú bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári :) Hafiði það sem allra best um jólin!




Og svonna í lokin, þar sem 3 af uppáhalds skvísunar mínar eiga afmæli núna um jólin þá vil ég óska þeim til hamingju með dagana :)

Sætustu systur mínar Andrea og Rebekka eiga afmæli á sunnudaginn, 21.desember og ég vil óska þeim fyrirfram til hamingju með afmælið, 14 ára skvísunar! Vonandi eigiði æðislegan dag, elska ykkur gullin mín!!!

Og síðan á líka Sarah Dröfn ástin mín, á afmæli eftir viku, 26.desember, svo til hamingju með 18 ára afmælið á föstudaginn elskan mín! Ég vona líka að þú eigir æðislegan dag :) Elska þig sætasta mín!!!


http://www.skateranchofraleigh.com/Welcome/Birthday%20Party%20Packages/birthday-cake2.png

Afmæliskaka til ykkar elskurnar, verði ykkur að góðu :)

Þúsund franskir kossar og knús á ykkur öll!!!!

- XoXo Elsa

3 mánuðir..rúmlega það!Elsa Bjarnadóttir

Komiði sæl og blessuð.

Komin meira en tími til þess að ég fara láta í mér heyra, komið meira en mánuður síðan síðast. Þið verðið að afsaka þetta bloggleysi, bæði útaf leti og tímaleysi..

Það er ekkert smá margt búið að vera í gangi hérna hjá mér seinasta mánuðinn. Ég kom heim frá Bordeaux seinasta föstudag eftir vikufrí þar. Þessi bær er svo fallegur, ég átti bara ekki orð. Það voru allir búnir að segja við mig að það væri allt svo fallegt þarna og það reyndist svo sannarlega vera satt!

Við lögðum semsagt á stað seinnipartinn á föstudeginum 24.okt, keyrðum þá til Limoges, það tók svonna rúma 3 tíma að keyra þanngað. Foreldrar Fabienne eiga hús þar, höfðum farið þanngað einhverja helgina áður. En við gistum þar föstudagsnóttina því það tekur rúma 6 tíma að keyra frá Clermont-Ferrand til Bordeaux. Vöknuðum síðan eldsnemma á laugadagsmorgninum og héldum áfram. Vorum komin til Bordeaux um 2 leitið, stoppuðum á leiðinni og fengum okkur að borða og svonna. Vorum bara þennan dag að koma okkur fyrir. Þar sem þau eru nýbúin að kaupa þetta hús þá var það alveg tómt, engin húsgögn eða neitt.. fyrir utan rúm, borð og stóla! Svo við vorum með troðfullan bíl af drasli sem tók sinn tíma að koma fyrir. Fórum um 8 leitið í mat til foreldra Jean-Marc, sem var fínt! Vorum komin heim um 12 leitið og þá horfðum ég og Aurore á Accepted, ágætis mynd, ég hló allavega alla myndina.

Síðan á sunnudeginum langaði mér svo að fara labba um bæinn, skoða hann. Því að húsið þeirra er aðeins útúr bænum, tekur svonna korter að keyra þanngað. Við skelltum okkur og systir Jean-Marc og maðurinn hennar eiga hús hliðina og hún fór með okkur. Löbbuðum standlengjuna í bænum sem var troðfull af fólki og meðfram ströndinni eru fullt af svo flottum búðum, kaffihúsum og börum. Þetta er svo flott! Síðan ákváðum ég og Aurore að losa okkur við gamla fólkið og fórum á einhvern bar þarna, sátum þar í svoldin tíma, vorum síðan að labba um þegar víð sáum Tivoli, skelltum okkur að sjálfsöðgu þanngað. Það var svo geðveikt, var fullt af klikkuðum tækjum, fórum í þetta allt og þetta var svo gaman! Síðan komu Fabienne, Jean-Marc og Sylvie systir hans, hún tók video af okkur í einu tækinu, set það hérna fyrir neðan.. ef ég kann að gera það réttara sagt. En síðan lá leiðinn aftur til baka eftir frekar langan dag. Elduðum góðan mat og það komu einhverjir ættingjar þeirra í mat.. sátum að sjálfsögðu við matarborðið í minnsta lagi í þrjá, fjóra tíma :)



Ég og Aurore

Aurore, Fabienne, Jean-Marc og ég.. alveg að missa sólgleraugun niður á nef hehe :)



Gaman gaman :)



Ég veit ekki afhverju ég er brosandi þarna, var að skíta á mig!



Ógeðslega gaman..

Videoið: http://s276.photobucket.com/albums/kk32/Elsabjarna/?action=view¤t=PA260024.flv



Rosalega vel heppnuð mynd. Systur Jean-Marc :)



Ég veit ekki hvort það sé ég sem kann ekki að taka myndir eða fólk á bara almennt erfitt með að halda augunum opnum, því allar myndirnar frá þessu kvöldi eru svonna. En kallinn með flotta yfirvarðaskeggið er einn mesti snillingur sem ég hef hitt.. maður systur Jean-Marc og mamma hans :)



Ég og Aurore

Á mánudeginum fórum við að skoða einhverja höfn, sem minnti mig nú bara mest á Ísland en var samt gaman að sjá. Keyrðum síðan í svoldin tíma til þess að fara að skoða sanfjall, eða mörg sanfjöll, ég átti ekki orð, þetta var eins og að vera stödd í egyptalandi eða eitthvað. Ekkert smá FLOTT!

Já var ekkert alltof góð lykt þarna, þvílík fiskifýla!

Á leiðinni upp sanfjallið og þetta tók sko á!



Útsýnið frá einni hliðinni..



Já þetta gekk ekkert alltof vel hjá þeim greyjunum.. enda gáfust þeir fljótt upp!



Eruði að sjá hvað þetta er fallegt? Mér langaði mest til þess að sofa þarna :)



Jean-Marc, Ég og Aurore



Á leiðinni niður..



Og komnar :)



Réðum ekki við okkur.. ákvaðum að skella okkur aðeins í sjóinn :)



Rennandi blautar og löng ganga til baka..



Og auðvitað var ég engan vegin að nenna þessu.. hehe



Á leiðini til baka..

Já, þetta var nokkuð skemmtilegur dagur :)

Svaf út til 2 á þriðjudeginum sem var æðislegt, alltaf svo gott að sofa! Skellti mér síðan í sturtu og svonna. Fór síðan með Aurore sem er "systir" mín hérna fyrir þá sem vita það ekki, fórum með tvem frændum hennar til Bordeaux. Skelltum okkur aðeins í tívólíið, löbbuðum um bæinn, fórum síðan á bar sátum þar í svoldin tíma og þaðan var farið að borða, á einhvern geðveikan pizza stað, svooo gott! Vissum síðan ekkert hvað við ættluðum að gera, svo skelltum okkur í bíó, á nýja mynd með Al Pacino og Robert De Niro, man ekki hvað myndin heitir.. En nokkuð góð mynd! Síðan var farið á bar, vorum þar í nokkra góða klukkutíma og síðan lá leiðin heim að lúlla:)

Restin af þessu ferðalagi var frekar róleg, slappað af og svonna! Ég var með fullt af heimvinnu sem ég átti eftir að gera.. ótrúlegt hvað kennaranir mínir hérna ættlast til þess að ég skilji þetta allt.. þegar ég skil svonna kannsi helminngin! Orðabókin er föst við mig allan tímann.. hehe :)

Skvísa



Herbergið mitt í Bordeaux.. eins og ég sagði ekkert nema rúmm og draslið sem fylgir mér :)

Á föstudeginum voru síðan tónleikar með Laurent Wolf á B.Box. Sem er svo sjúkur staður! Einn stæðsti skemmtistaður í Evrópu takk fyrir.. eða það segja þeir, aldrei að vita! Ég fór og hitti Hélu og við fórum til Lilas, gerðum okkur til þar og svonna! Síðan kom Flavie með vinkonu sinni að sækja okkur, systir hennar skutlaði okkur. Þegar við vorum loksins komnar þá var grenjandi rigning og þvíííílík röð fyrir utan og Héla þekkir eina stelpu sem er að vinna þarna og hún kom og hleypti okkur inn, heppnin alveg með okkur ;) Það var alveg troðið af fólki þarna og ég skemmti mér ekkert smáá vel! Fórum síðan aftur heim til Lilas um morguninn er hægt að segja.. ég, Héla og Lilas, gistum þar! Vöknuðum síðan ekki fyrr en um 3 leitið daginn eftir.

Ég, Lilas og Héla áður en við fórum :)



Laurent Wolf!! Ekkert nema snillingur.



Héla sæta mín :)



Flavie skvísa



-



Dansgólfið!

Þetta eru einu myndirnar frá þessu kvöldi sem eru viðeigandi hérna inná :)

Síðan var restin af helgini frekar róleg, fór mest í það að læra og slappa af, horfa á gossip girl! Koma síðan myndir inná myndasíðuna og myspace mjög bráðlega.. maður verður að fara hætta að vera svonna latur og gera þetta :)

Finnst svo gaman að sjá kommentin, svo ég vill að þið kommentið fólk! Þykir svo vænt um það :)

_____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________


Hann elsku Bjarni Salvar Sigurðsson, litli sætasti 10 mánaða frændi minn lést fimmtudaginn þann 23.október.
Sterkar minningar um algjöran gullmola, yndilslegan og brosmildan lítin strák mun vera með okkur um alla tíð og lifa svo skært í hjarta mínu. Það er ekkert annað hægt að gera en að vera sterkur og þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Ég vill votta allri fjölskyldu minni heima alla mína al dýpstu samúð. Rakel, Siggi og Þórunn Lea, votta ykkur elsku fallega fjölskylda, enn og aftur alla mína samúð. Ég hugsa stanslaust til ykkar allra heima. Vildi óska þess að ég gæti verið hjá ykkur.

-



Gullfallegastur :*



Gullmolinn minn!!



Sætustu systkynin :* 

Hvíldu í friði elsku Bjarni Salvar minn og megi guð geyma þig! Þú munt alltaf eiga sérstakan stað í mínu hjarta :*

- Elsa Bjarnadóttir

Margt í gangi! Elsa Bjarnadóttir

Hey hotties! Jæja.. svo margt búið að vera í gangi, að ég veit ekki hvar ég á að byrja!

Fimmtudagurinn 18.sept : Ég vaknað kl 6 og dró Edouard fram úr rúmminu, því Eloise átti afmæli og ég vildi búa til creps fyrir hana og gat ekki gert það sjálf.  Mér gekk frekar ílla við þetta, eyðilagði svoldið margar, en borðaði það bara sjálf :) Bjuggum til fullt, með súkkulaði, banana og allskonar svo góðu! Fórum svo í skólann, byrjaði á ensku tíma, kennarinn kom með óvænt próf fyrir okkur, alltaf jafn gaman.  Þetta var síðan mjög auðvelt, ég veit ekki afhverju ég var einu sinni að búast við einhverju öðru! Allar leiðbenningar samt á frönsku, en þrátt fyrir það frekar auðvelt;) Eftir skóla kom Claire og sótti mig, við fórum og keyptum afmælisköku fyrir Eloise. Borðuðum svo rosa góðan kvöldmat, drukkum kampavín og svonna! Um 11 leitið voru allir að fara sofa, ég og Eloise hinsvegar ekkert þreyttar. Og hún var einhvað að segja að hún hefði viljað gera einhvað meira yfir daginn. Svo ég fór niðrí kjallara og rakst að sjálfsöðgu á nokkrar mýs á leiðinni, náði í freyðivín og restinni af kökunni. Við sátum langt fram eftir öllu að borða köku, drekka freyðivín og blaðra!

Föstudagurinn 19.sept :
Vakanði eftir 3 tíma svefn við símann minn hringja á fullu, langaði mest til þess að eyðileggja hann, sleppti því samt. Það var bara ekki séns að ég væri að fara framúr, svo ég sofnaði auðvitað aftur, vaknaði rétt áður en við þurftum að fara út, svo ég hennti mér í föt og hljóp út! Mætti í skólan mjög fersk og falleg :) Dagurinn leið mjög hægt var í tvöföldum tímum allan daginn, var að berjast við að halda mér vaknaði, svo ég gerði svoldið af æfingum í frönsku og svonna! Var síðan bara nokkuð dugleg!

Orrentation camp!

Laugadagurinn 20.sept :
Vaknaði kl sjö, kláraði að pakka og gerði mig reddí. Kl. 10 kom Veronic að sækja mig, við fórum og sóttum Beverly, keyrðum svo í  3 tíma þanngað til við vorum komnar á áfangastað! Sem var lengst uppí fjalli. Ískalt og rigning þegar við komum. En það breyttist fljótt, þegar allir voru komnir var hætt að rigna, en samt ennþá frekar kallt! Var ekkert smá gaman að hitta alla aftur, allir með fullt að segja frá. En það var einhver dagskrá framundan svo við klæddum okkur í hlý föt og fórum í einhverja fjallgöngu, við héldum auðvitað að þetta væri einhvað grín, en nei nei þeim var mjög alvara. Eftir allt var þetta nú ekkert svo slæmt, ágætis hreyfing, stoppuðum í einhverjum rosa krúttlegum skála og fengum kakó, kökur og svonna :)  Komum síðan til baka 2 tímum síðar. Fundum herbergin okkar, ég var með Vibeke og Naomie í herbergi.  Fórum síðan niður þar sem allir sátu  að blaðra, mér brá ekkert smá að sjá hversu margir gátu talað frönsku eftir einn mánuð, en það voru líka margir sem voru búnir að læra frönsku áður en þeir komu hingað og margir sem höfðu ekkert lært áður. En já töluðum á ensku og frönsku til skiptist! Maður verður frekar ruglaður, en þetta venst! Síðan þurftum ég og Vibeke frá Danmörku að búa til salat, og ég komst að því að ég er mikið betri í dönsku en ég hélt, gat haldið uppi frekar löngu samtali, með fyndnum hreimi auðvitað, en ég var samt svo stollt af mér :) Borðuðum síðan salat, pasta, kjöt og allskonar. Var ekkert alltof gott, en ágætt! Sátum síðan allt kvöldið að spjalla, spilað á gítar og allskonar.. mjög gaman :)




Sunnudagurinn  21.sept : Vorum vakin kl. 8 með þvílíkum látum, alltaf jafn gaman! Fórum og borðuðum morgunmat og síðan í sund. Fórum eftir sundið og pökkuðum draslinu okkar saman og löbbuðum um bæinn, svo krúttlegur gamall franskur bær, öll húsin svo flott og landslagið svo fallegt :) Borðuðum síðan hádegismat og láum úti í sólbaði, fylltum fötur af vatni og já skemmtum okkur mjög vel! Síðan um 3 leitið lá leiðin aftur heim. Ég og Beverly sváfum alla leiðinna heim, dauð þreyttar! Kom heim og horfði á Gossip Girl með Eloise og sofnaði eldsnemma!



Mánudagurinn 22. Sept :
Skóladagurinn byrjaði á prófi í bókmenntatíma, sem ég þurfti að taka líka, þótt að ég hefði ekki skilið neitt í bókinni sem við áttum að lesa! Áttum að skrifa 3 bls, ég horfði á blaðið og vissi ekkert hvernig ég ætti að fara að þessu. Byrjaði að skrifa einhverjar  10 línur, sem var erfitt, kom kennarinn til mín og sagði að ég þyrfti bara að skrifa eina bls, og mætti gera það sem heimavinnu! Þvílíkur léttir, hefði aldrei getað skrifað 3 blaðsíður! Skólinn leið síðan frekar hratt. Eftir skóla fór ég með Justine og Eloise vinkonu hennar í litla mollið í bænum, skoðuðum í nokkrar búðir og sátumst síðan niður og fengum okkur drykk, sátum í svonna klukkutíma að spjalla :) Kom síðan heim og fékk þær fréttir að ég væri komin með nýja fjölskyldu og myndi fara þanngað á morgun! Svoldið sjokk.. var svo engan vegin tilbúin til að fara frá þeim.. en gat ekkert gert í því! Ég þurfti að skipta um skóla, var að fara í annan bæ, sem er samt mikið stærri bær, mikið meira að gera og svonna svo ég kvartaði ekkert yfir því. Svo ég byrjaði ég að pakka, sem var ekkert lítið erfitt, vissi ekkert hvernig ég  ætti að fara að þessu, vantaði mömmu til að hjálpa mér, en á endanum tókst þetta! Heyrði síðan í mömmu og pabba, sem er alltaf jafn æðislegt :) 



Eloise og Justine skvísur

Þriðjudagurinn 23. sept : Vaknaði frekar snemma og kláraði að pakka og gera allt! Vorum farin út kl. 9! Var svo erfitt að kveðja þau öll, sakna þeirra svo! Var alltaf jafn gaman hjá okkur, sama hvað við vorum að gera, eru svo hress! En kl. 10 kom Fabienne að sækja mig, hún horfði á veskið mitt og spurði “ó, Is this all?” Haha, Claire fannst þetta alveg mjög fynið! Fórum síðan og náðum í töskunar mínar, 3 risa stórar, aumingja konan vissi ekkert hvernig hún átti að láta, “how did you travel with all of these bags?” “this is so MUCH”. Hehe já einhvern vegin tókst mér það! Keyrðum síðan í svonna 40 mínútur, þau búa í litlu einbýlishúsi rétt fyrir utan miðbæinn, tekur 10 mínútur fyrir mig að labba í skólan! Ég reyndi að koma mér fyrir, sem var frekar erfitt, því ég er ekki með fataskáp bara kommóðu, og já.. ég horfði á fataplássið mitt og bara.. já þetta er ekki að fara ganga! Svo ég færði nokkra hluti til og bjó til meira pláss og á endanum komst þetta allt fyrir! Er síðan bara með svonna fataslá fyrir það sem þarf að hengja upp, sem er mjög mikið! Hehe :) Fórum svo í skólann og hún fór og sýndi mér allt, ég gat ekki hugsað um annað en hvernig ég ætti að geta ratað um skólann, ég sem hélt að gamli skólinn minn hefði verið stór, já nei hann er ekkert á við þennan! Það er 1500 krakkar í skólanum, sem er mjög mikið og bærinn heitir Clermont-Ferrand. Gerði svo ekki mikið þennan dag fyrir utan bara skoða mig um, koma mér fyrir og svonna :)

Miðvikudagurinn 24.sept :
Fyrsti skóladagurinn! Fór með “systur minni” Aurore í skólann. Byrjaði á tvöföldum sögu tíma, fyrsti skóladagurinn alltaf jafn skemmtilegur, allir að stara á mann! En bekkurinn minn er mjög fínn, er rosa ánægð með hann!  Þessi dagur var stuttur, alltaf búin kl. 12 á miðvikudögum! Svo eftir skóla fór ég heim og lagði mig aðeins, var svo þreytt! Fór svo með Aurore í smá “skoðunarferð” um bæinn.. fórum útum allt, með strædó auðvitað, ekki séns að maður geti labbað þetta allt! Fórum í nokkur moll og útum allt :) Enduðum svo heima og sátum fyrir framan sjónvarpið allt kvöldið að spjalla, horfðum á The Eye, sem betur fer á ensku með frönskum texta fyrir hana, því hún talar ekki mikla ensku.

Fimmtudagurinn 25.sept: Annar skóladagurinn, mætti kl.  8 í sögu tíma og síðan var tvöföld eyða fór þá með nokkrum krökkum í bekknum, fórum og keyptum okkur að borða fórum svo í einhvern svonna garð og sátum þar og borðuðum og spjölluðum! Alltaf jafn fyndið hvað engin veit neitt um Ísland, mér finnst eins og ég sé frá einhverju landi sem engin veit hvað er. Og að við séum með okkar eigin tungumál og eigin peninga! Þetta finnst öllum bara skrítið! Hehe :) Var síðan búin í skólanum kl. 6, já ég er í skólanum frá 8 - 6 á fimmtudögum! Langur dagur, er samt með svoldið af eyðum svo þetta er allt í lagi!

Föstudagurinn 26.sept : Átti ekki að mæta í skólann fyrr en kl. 10, svo ég gat sofið aðeins lengur! Fór út kl hálf 10 og hitti Marine, sem býr rétt hjá mér, við löbbuðum í skólan og hún var að sýna mér allskonar hluti í bænum! Maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt. Var í skólanum til 4, fór heim að læra.. var með þvílíkt mikla heimavinnu og þetta er svo erfitt fyrir mig, svo ég þarf virkilega að taka minn tíma í þetta! Orðabókinn er notuð svo mikið í öllu! Get ekki gert eitt verkefni án hennar, hehe en það fer kannski að breytast bráðum.  Fór síðan snemma að sofa því ég er í skólanum á laugadögum! Þvílíkt stuð.

Laugadagurinn 27. sept : Vaknaði kl 8 og þurfti að mæta í skólann kl 9. Ílla bitur, var ekki alveg að sætta mig við að fara í skólan á laugadegi, en einhvernvegin tókst Fabienne að ýta mér útúr húsinu! Hehe ;) Er samt bara í einum heimspeki tíma frá 9 - 11. Eftir skóla fór ég með Héru, Marine og Anais á subway! Var svoldið farin að sakna þess að fara þanngað,  hehe! Fórum svo í Jaude, sem er rosa stórt torg með fullt af búðum, veitingastöðum og þar eru tvö moll og svonna. Þetta er miðbærinn! Vorum þar í svoldin tíma, ég og Héra skelltum okkur í ljós, fórum svo að skoða í búðir, ég á svo erfitt með að ráða við mig hérna, allt svo flooottt! Fórum svo á kaffihús og sátum þar í svoldin tíma. Ég fór síðan heim með strædó, svo skrítið að taka alltaf strædó núna, svo þæginlegt að vera með bílpróf! En já gerði mig til og svonna, hitti síðan stelpurnar aftur og vini þeirra, fórum út að borða og á Shakespear leikrit! Sem ég hélt að ég myndi sofna á, hræðilegir leikarar og við sáum ekki neitt fyrir fólkinu fyrir framan okkur.. þegar svonna hálftími var búin af leikritinu, var svaka há tónlist og læti svo við læddumst öll út, sem var mjög erfitt.. þurftum að klifra yfir svoldið af fólki hehe en þetta tókst á endanum! Vorum svo fegin að vera komin út. Fórum þá heim til Allexy sem er stákur í bekknum mínum, vorum þar í svoldin tíma og enduðum svo á einhverjum stað niðrí bæ, ekkert smá stór! Vá ég skemmti mér svo vel, gat loksins dansað, var ekki hægt að taka mig af dansgólfinu, hehe var að skemmta mér svo vel :)

Sunnudagurinn  28. sept :
Var ekkert alltof skemmtilegur! Vaknaði um hádegi og langaði mest til að sofa allan daginn! Og já gerði það svonna eiginleg. Ættla ekkert að vera segja of mikið frá þessum degi, er ekkert alltof margt spennandi að segja frá. Labbaði síðan yfir til Marine eftir kvöldmat, þar voru einhverjir krakkar.. var það í smá tíma fór síðan og hitti Aurore, og við stoppuðum í sjoppu á leiðinni heim, keyptum okkur nammi og fórum heim og höfðum það kósí :)

Vaknaði síðan í morgun og fór í skólann, fór í 4 tíma og var síðan í fríi eftir hádegi. Og ég ætti eiginlega að vera læra núna, er að fara í spænsku próf á morgun! Svo ég ættla fara læra og ég held að þetta sé komið mikið meira en nóg :) Hehehe.
 



Í París.. Marta, Fríða, Ég og Hákon



Ég og Eloise í Lyon


Au revoir  - sæl að sinni, bið að heilsa Íslandi :)

MánuðurElsa Bjarnadóttir

Kominn tími á nýtt blogg! Ég hef samt sem áður engan tíma til að blogga:) En það er liðinn mánuður á föstudaginn, mér finnst þetta svonna aðeins farið að líða:)

En seinustu dagar hafa verið frekar hversdagslegir, fyrir utan það að ég er búin að vera veik! Fékk einhverja magaveiki, lá uppí rúmmi alla helgina alveg að drepast, fór síðan fyrst í skólann í dag og líður mikið betur. Svo ég hef ekkert mikið að segja frá seinustu dögum, allavega ekkert spennandi.

Vaknaði í morgun á slaginu sjö, skellti mér í sturtu og svonna og var síðan mætt í skólan kl. níu. Fyrsti tíminn hjá mér var Enska, sem er alltaf jafn skemmtilegt, eða skárra en allir aðrir tímarnir. Fór síðan í tvöfaldan philosophie tíma eða heimspeki, sat þar að glósa og hlusta á ipodinn allan tímann.. ekkert svo slæmt:) Og síðan var skólinn búin kl tólf. Fór þá heim að borða, pasta og einhvað gott. Claire þurfti síðan að fara til Clermont-Ferrand og ég skellti mér með henni, stoppuðum í leiðinni í vínakri, einhver vinur hennar var þar og hennti í hana nokkrum flöskum, hún var sko ekkert lítið sátt með það;) Þegar við vorum svo loksins komnar, þá fór ég í einhvað moll á meðan Claire var að stússat einhvað, hitti þar vinkonu Eloisar, Maryne.. já ég kann ekkert að skirfa öll þessi nöfn, en held það sé skirfað svonna:) Fórum í nokkrar búðir, fann mér eina peysu og svonna ýmislegt:) Fórum síðan á mc donalds og fengum okkur einn feitan borgara!

Ákvað síðan að koma hingað og reyna setja inn myndir, en þetta er bara að ganga svo rosalega ílla, ekki alveg að vinna með mér hérna. Virkar ekki að setja myndir inn hérna, veit ekkert afhverju! Bjó síðan til picturetrail síðu, og það allt að gerast einhvað mjög hægt þar! Svo óþæginlegt að vera ekki með netið heima, ef ég væri með það væri ég löngu búin að setja inn myndir. En þetta fer allt að koma.. hehe ég er að vinna í þessu:) En það eru komnar myndir inná myspaceið mitt, fyrir þá sem eru með myspace... myspace.com/elsabj.



Ég með flottan svip, Fríða, Marta og effelturninn :)



Smá partur af skiptinemahópnum :)

En þetta er komið nóg í bili!

Símanúmerið mitt  hérna úti er : (0033) 06.77.34.13.99.

Heimilisfangið mitt er : Impasse de Roitelets
                                     63340 Vichel
                                     FRANCE

Þetta er samt bara tímabundið heimilisfang.

Kossar og knús á ykkur öll :)

- Elsa

Fyrsta skólavikanElsa Bjarnadóttir

Fyrstu skóladagarnir búnir hjá mér hérna í Frakklandi.. og ég alltaf í mínum eigin heimi í tímum að reyna skilja einhvað sem kennarinn segir, en það er ekkert að ganga neitt alltof vel...

Seinasta miðvikudag var skólasetning. Mættum kl. 9, þá var hellingur af fólki fyrir utan skólan.. allir að bíða. Edouard var að labba útum allt og ég á eftir honum að sjálfsögðu:) Fór síðan og fann stofnuna mína sem gekk by the way mjög ílla, skólinn er eitt völundarhús, svonna eru t.d. stofunúmerin.. T03 eða B10. Fann síðan stofuna á endanum. Er í mjög fínum bekk, svonna 30 krakkar í bekknum! Kennarinn las upp fögin og við áttum að skrifa niður, það er ekki alveg að fara ganga fyrir mig! Svo stelpan sem sat hliðina mér hjálpaði mér við þetta. Er frekar ánægð með stundatöfluna, byrja reyndar alltaf kl. 8 svo ég þarf að vakna kl 6:30, sem er ekki alveg það skemmtilegasta, en er búin kl 12 á þriðjudögum og miðvikudögum:) Og hina daganna er ég yfirleitt búin kl 5. Vorum síðan búin um 1 leitið, fór þá og hitti einhvern kennara sem lét mig fá nokkrar æfingar í frönsku, því ég er ekki í neinum frönsku tímum! Fór heim og reyndi að gera þessar aefingar, sat yfir tassu heil lengi, ad reyna àtta mig a tessu.. tetta fer allt ad koma!

Fyrsti skóladagurinn var síðan á fimmtudeginum, byrjaði á sögu tíma, kennarinn minn þar sagði við mig að hún ættlaði ekki að þýða neitt yfir fyrir mig svo að ef ég vildi skilja þá þyrfti ég bara að reyna þýða orðin yfir sjálf.. já veistu nei, það er svoldið erfitt, að þýða hvort orð sem hún segir, þegar ég veit ekki einu sinni hvað það er, held að ég sleppi að gera það! Næsti tími var Enska, sem mér fannst alveg frábært, skildi loksins allt og mikið meira en það, ekki nema von að engin tali góða ensku hérna, þau eru svo mikið á eftir, svo ensku tímarnir hérna er mjög auðveldir fyrir mig. Fór síðan í spænsku, þegar tíminn var búin spurði ég kennarann hvaða spænsku áfangi þetta væri, og ég var sett í spænsku 103, útskýrði margt. Fór á skrifstofuna og sagði þeim að ég væri búin með spænsku 103 og 203.. og þá var ég sett í 403, haha skildi ekkert hvað var í gangi, þetta var alltof erfitt. En á endanum skildu þau loksins að ég ætti að vera í 303. Var búin í skólanum kl 4 fór þá heim alveg dauðþreytt og lagði mig, fór síðan í bíó á The Dark Night með Eduard og vinum hans (og í þriðja skiptið, en fyrsta skiptið á frönsku) hehe.

Föstudagurinn gekk strax betur, átti ekki alveg jafn erfitt með að finna stofunar sem ég átti að vera í. Og kennarnir mínir eru allir mjög fínir, fyrir utan sögu kennarann minn hún er ekki alveg sú skemmtilegasta, hún talar bara alltaf við mig frönsku ég sagði við hana í dag: Sorry, If you want me to understand you, you have to speak english, og hún talaði ensku svo hægt, sagði eitt orð í einu og sagði hvert orð svo hægt.. það var svoldið pirrandi og síðan þá gerir hún það alltaf. Langar svo að segja við hana er ekki heimsk, tala bara ekki frönsku!!! En hún veit það alveg, er bara einhvað bitur kellingin. En fór síðan í íþróttir, máttum velja um fótbolta, handbolta, sund og eitthvað eitt annað.. stelpurnar í bekknum mínum dróu mig með sér í handbolta takk fyrir og ég kann ekkert! Hehe vona bara að það verði gaman. Fór síðan heim eftir skóla og fór út að skokka, það er svo heitt hérna.. svo geggjað að fara út að skokka og þurfa ekki að vera í hettupeysu og þannig klæðnaði. Kom síðan til baka frekar sveitt og skellti mér í sundlaugina og synti nokkrar ferðir, svo þæginlegt að vera með sundlaug, elska það:)

Svaf síðan til hádegis á laugardeginum, ekki nema von var svo þreytt eftir vikunna. Vaknaði og þá var fullt af fólki frammi, ég nývöknuð í náttbuxum, brá ekkert smá! Þá voru þetta systkyni Claire og fjölskyldunar þeirra, öll að knúsa mig og spurja mig endalaust um allt. Ég gat ekki hugsað um annað en að fá mér að borða morgunmat.. en þá var komin hádegismatur, ég dreif mig og skitpi um föt. Hádegismaturinn hérna eru heilu máltíðinar, kjöt, karteflur og alles. Mér langaði svo mikið bara í morgunkorn, en þetta var samt mjög gott:) Var síðan bara allan daginn í leti að horfa á desperate housewifes, síðan dró Eloise mig úr rúmminu. Fórum í Issorie, borðuðum þar og fórum síðan og hittum einhvern vin hennar sem hún fór síðan með í bíó. Ég fór og hitti Edouard og fór með honum í einhvað party eða hitting.. kannaðist við nokkra þarna sem eru með mér í skóla, annars var þetta ekkert alltof spennandi svo við vorum ekkert lengi þar, enduðum síðan heima um 1 leitið og horfðum á Blood Diamond, mjög góð! Og síðan steinsofnaði ég:) Restin af helgini var síðan frekar róleg, gerði ekki mikið!

Vakanði síðan kl 6 á mánudeginum og það var ekkert lítið erfitt! Claire kom og vakti mig því.. ég vakna auðvitað aldrei við vekjaraklukkur, það er bara ekki að fara gerast! Hún dró mig næstum því úr rúmminu, það þarf víst yfirleitt alltaf að vera þannig, nei segi svonna:) Fór í skólann, byrjaði á tvöföldum sögu tíma hjá uppáhaldskennaranum mínum, rosa gaman.. Var síðan í tvöfaldrei eyðu, er með svoldið mikið af þeim! Ég, Charlotte og Olivia (held að nöfnin séu skrifuð svonna) fórum og keyptum okkur nammi og láum úti í sólbaði að spjalla. Þær spurðu mig t.d. hvar Ísland væri og hvernig ég hefði komið hingað, hvort ég hefði komið með skipi? Ég hló svo mikið, já það er enginn flugvöllur á Íslandi! Og þær gátu ekki ýmindað sér hvernig Ísland væri, er ekki alltaf kallt þar, líka á sumrin? Hehe ég reyndi að útskýra hvernig þetta væri eins og ég gat, það gekk samt ekkert alltof vel:)

Gærdagurinn var síðan mjög svipaður, vakna kl hálf sjö, skólinn reyndar bara til 12, sem er svo geggjað. Fór heim eftir skóla og þá var að sjálfsöðgu hádegismatur, fer alltaf heim í hádeginu og borða. Lagði mig síðan á meðan Félix var að æfa sig á píanóið, já ég gat ekkert langt mig neitt almennilega, hann er ennþá að læra kallinn.. þetta fer samt allt að koma hjá honum! Hehe. Fór síðan út að skokka, maður er duglegur, það er ekki spurnig;) Og síðan að synda, svo nice! Fór síðan og hitti Charlotte og einhverjum stað fengum okkur drykk og sátum í svonna klukkutíma að spjalla, hún talar samt ekkert mjög góða ensku, en við getum allavega talað saman:) Í dag mætti ég kl 9 í skólan, fór í ensku og heimspeki tíma, sem ég skil ekki orð í var að gera einhverjar æfingar í frönsku og teikna allan tímann! Mjög gaman.. síðan hringdi Berglind í mig, sat úti og spjallaði við hana í svoldin tíma og endaði hérna:)

En þetta er komið nóg í bili:) Get ekki sett inn myndir hérna.. veit ekki afhverju, það er allavega ekki að virka eins og er! Ég bý þá til myndasíðu og set allt þar inn! Geri það á morgun!!!

Tetta er ekkert ad virka med myndirnar og tar sem èg er ekki med netid heima hja mer hef eg ekki mikinn tima til ad gera tetta, en set allar myndinar inn ì vikunni, og alveg helling :) 


Èg vill fà fullt af kommentum, svo gaman ad lesa tau:)

- Elsa

Lífið í FrakklandiElsa Bjarnadóttir

Bonjour!

Jaeja þá eru næstum því tvær vikur liðnar hérna hjá mér í Frakklandi og komin meira en tími til þess að blogga!

Ferðalagið byrjaði með bílferð með fjölskylduni uppá Keflavíkurflugvöll, allir alveg með tárin í augunum, alltaf svo erfitt að kveðja. Hitti síðan alla krakkana flugvellinum og við tókum flug til Parísar, þar tóku AFS-sjálfboðaliðar á móti okkur, við fórum í rútu á heimavist háskólans. Okkur var öllum skipt í herbergi, ég var í herbergi með þrem öðrum stelpum, frá Ítalíu, Egador og Bandaríkjunum. Gerðum alveg fullt á þessu námskeiði.. skoðuðum t.d.París , sem er ekkert smá falleg borg! Verð að fara aftur þanngað einhvertíman, það er alveg pottþétt. Annars var þessi helgi bara alveg mjög skemmtileg, kynnst krökkunum frá Íslandi nokkuð vel, frábær hópur alveg, get ekki beðið eftir að sjá þau öll aftur:) Síðan líka stelpunum sem eru með mér í herbergi.. kynntist þeim svoldið og ein af þeim er í sama skóla og ég, svo ég verð ekki ein um það að vita ekkert. Á sunnudegium vorum við vakin kl 7 og tókum lest til Cermont-Ferrand, þar tóku fjölskyldunar á móti okkur.

Ég er stödd í suður Frakkalandi, sem er ég er svo ánægð með:) Fjölskyldan er alveg frábær. Foreldranir heita Félix og Claire og eiga einn son Edouard(91') og dótturina Eloise(89') hún fór sem skiptinemi til Íslands 2006-2007, svo hún talar smá íslensku, tölum alltaf íslensku þegar við viljum ekki að neinn annar skilji og ekki séns að einhver sé að fara skilja það;) Þau búa í litlum bæ sem heitir Vichel, svoldið gamalt húsið sem þau búa í, ég er búin að rekast á mús og allskonar skemmtilegt, það er samt svo krúttlegt húsið sem þau búa í.. eru með sundlaug í garðinum, sem er búið að vera alveg nauðsynlegt seinustu daga, búið að vera svo heitt hérna, fór uppí 34 stiga hita einn daginn! En ég er í skóla í bæ sem heitir Issorie. Þau eru þar alla daga, reka búð í þeim bæ og eiga íbúð þar, svo við erum eiginlega alltaf þar, sem er bara gott mál:) Tekur svonna korter að keyra þangað.

Fyrsta vikan mín hérna er búin að vera svo frábær, Eloise er búin að fara með mig útum allt! Fyrsta daginn var ég bara að koma mér fyrir og svonna. Drukkum kampavín og borðuðum ekta franska máltíð, rosa gott:) Herbergið mitt er alveg fínt, gamla herbergið hennar Eloise, svo það er allt hennar dót ennþá inní því, átti svoldið erfitt með að koma mér fyrir því er með svo mikið með mér, en þar sem ég verð bara hjá þessari fjölskyldu í mánuð þá nenntu þau ekki að vera tæma herbegið hennar. En já.. þótt ég skipti örugglega um fjölskyldu eftir mánuð, þá verð ég ennþá í sama skólanum. Þau vildi bara vera með mig í mánuð því Eloise er síðan að fara í háskóla í Cermont-Ferrand og var að kaupa íbúð þar með vinkonu sinni, svo þau voru hrædd um að mér myndi leiðast án hennar, sem er kannski satt. Svo þetta er bara mjög fínt svonna.. vona bara að hin fjölskyldan verði jafn æðisleg og þessi:)


Er búin að gera svo margt. Annan daginn minn hérna fórum við til Cermont-Ferrand, hittum vinkonu Eloisar þar, fórum í moll og allskonar, löbbuðum um bæinn. Fórum síðan í bíó á Skrapp út eða Back soon, svo fyndið að fara á íslenska mynd í Frakklandi. Það var íslenskt tal og franskur texti og alveg fullur salurinn sem ég átti ekki von á, en alveg ágætis mynd. Enduðum svo með því að hitta einhverja vini þeirra og fórum út að borða. Ég að sjálfsögu eins og mállaus manneskja, talar enginn ensku hérna og þau öll talandi á frönsku, ég reyni alltaf smá að tala frönsku, en það gengur svonna misvel.. allir að reyna að tala við mig á ensku, en enskan þeirra getur verið svo slæm, að það er bara fyndið! En þetta var samt mjög gaman eftir allt saman. Ég og Eloise fórum síðan daginn eftir með lest til Lyon, sem er ein af stæstu borgunum hérna í Frakklandi. Vá búðinar þarna, ég hefði gjörsamlega geta misst mig. Channel og allar merkjavörubúðinar alveg í röðum. Fórum síðan í ekkert smá stórt moll, var svo mikið af búðum þar, H&M og fullt fleirra.. ég verslaði nú aðeins of mikið, en samt reyndi ég að passa mig, því það er svo sannarlega ekki erfitt fyrir mig að missa mig. Vantaði alveg mömmu til að segja við mig neeeei hættu nú alveg, ekki eina töskuna í viðbót, hehe:)


Er síðan búin að gera alveg helling. Fór með Eloise seinasta föstudag í smá partý, strákurinn sem átti heima þar var að fara til London í skóla í ár, svo hann bauð nokkrum krökkum til sín. Það var samt ekkert smá gaman, fórum í guitar hero haha og ég er svo mikid omurleg í því, váá ég ættla ekki að gera mér það að fara aftur í hann;) Á laugardeginum var síðan matarboð heima, því Félix átti afmæli.. sjötugur kallinn, og ennþá svo hress að það er bara erfitt að trúa því. Nokkrir vinir þeirra og ættingar komu og það var að sjálfsögu skálað með kampavíni og síðan borðað góðan mat og drukkið vín með honum, þau drekka alltaf rauðvín með öllum máltíðum, það klikkar ekki.. mér fannst það ekkert alltof gott áður en ég kom hingað, en nuna mikid betra! Svo þegar ég kem heim þá verður alltaf rauðvín með öllum máltíðum, ég á ekki eftir að taka annað í mál.. nei djók! En svo fórum við og leigðum mynd og láum fyrir framan sjónvarpið allt kvöldið.


Í gær svaf ég út.. vaknaði einhvað um tólf leitið. Og ég, Eloise og Edouard fórum í svonna berjamó, þau fara alltaf þangað og týna ber. Það var ekki alveg fyrir mig, því það var allt í þyrnum þarna, þau hlóu svo mikið af mér því ég var alltaf, ah fuck, ah shit, er öll í rispum og sárum á höndunum:( hehe. Bokudum svo koku ur teim, og hun var svo gòd:) Tókum síðan lest til Cermont-Ferand og hittum þar bestu vinkonu Eloise, Lauren.. fórum og hittum einhverja vini þeirra og enduðum svo heima hjá henni og gistum þar:) Og í dag fórum við að ná í skólabækur. Ég er á félagsfræðibraut bara alveg eins og heima, valdi það því þá er ég ekki með neina stærðfræði.. því stærðfræði á frönsku, já nei takk fyrir! Og er með spænsku og ensku sem tungumál:) Skólinn byrjar á morgun, er alveg orðin svoldið spennt á sjá hvernig það verður og líka stressuð því ég tala eiginlega enga frönsku.. en smá, svo þetta reddast:)

Ég set inn myndir bráðlega! Hlakka til að sjá komment:) Sakna Íslands og ykkar allra heima svo mikið!

Love you all!!!!

-Elsa

FrakklandElsa Bjarnadóttir

Sæl og blessuð!

Ég er að fara sem skiptinemi í ár til Frakklands, þann 22.ágúst! Svo ég ákvað að gera þetta blogg svo þið hérna heima getið fylgst með mér úti:)

Ég er reyndar ekki komin með fjölskyldu og veit ekki hvar í Frakklandi ég verð, en þrátt fyrir það er ég þvílíkt spennt!

Ég ættla reyna vera dugleg við að blogga og setja inn myndir. Blogga aftur þegar ég veit meira:)

Fylgist með!

-Elsa

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Elsa Bjarnadóttir
  • Staður: Garðabær
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Ég heiti Elsa Bjarnadóttir, 17 ára stelpa úr Garðabænum. Er skiptinemi í Frakklandi, fór út 22.ágúst og kem heim næsta sumar.
  • Annað: 34 rue Guynemer - 63000 Clermont-Ferrand - FRANCE. Símanúmerið mitt: (0033) 0677341399

Klukkan